fbpx

Segðu offitunni stríð á hendur

Lífsstílsbreyting sem endist

Hope er 6 mánaða lífsstílsbreytingar prógramm fyrir þá sem kljást við offitu. Þú ert leidd/ur í gegnum lítil dagleg skref í átt að heilbrigðari lífsstíl með hjálp frá ráðgjafa og Hope kerfinu. Við förum saman í gegnum mataræði, æfingar og andlega líðan.

Þú færð reglulega aðstoð ráðgjafa, sem hefur hreyfifræði og sálfræði menntun, til að komast yfir allar þær líkamlegu og andlegu hindranir sem hafa hingað til verið að stöðva þig í að ná árangri. Samskipti fara í gegnum tölvu eða síma, svo ekki skiptir máli hvar þú ert á landinu.

Hope er ekki skyndilausn, Hope er breyting til frambúðar.

Skrá mig Nánari upplýsingar

Hvað er Hope?

Hope er 6 mánaða lífstílsbreytingar prógramm hannað fyrir einstaklinga sem vantar hjálp og stuðning við að breyta yfir í heilbrigðan lífsstíl og léttast. Prógrammið einblínir á betri líkamlega og andlega heilsu með því að leiða þig í gegnum breytingar að hollara mataræði og hreyfingu. Varanlegt þyngdartap kemur náttúrulega með heilbrigðari lífsstíl, en engum öfgum.

Þetta er ekki kúr, eða skyndilausn, heldur lífstílsbreyting sem er gerð til að endast. Prógrammið hentar einstaklingum sem eru komnir í þrot, þurfa mikla aðstoð, aðhald og stuðning, og vilja taka lítil skref í einu með hjálp frá sérfræðing á þessu sviði. Prógrammið er 6 mánuðir því það er vísindalega sannað að það tekur tíma að gera varanlega lífstílsbreytingu.

Við hjálpum þér að gera breytingar á hugsunarhætti, mataræði, og hreyfingu, ásamt því að gefa þér tækifæri til að hafa val um máltíðir og tegund af hreyfingu, til þess að tryggja að þetta verði skemmtileg og uppbyggileg reynsla. Einnig færð þú sent fræðsluefni til að hjálpa þér að læra hvað hentar þér og þínum líkama til þess að geta haldið áfram á þessari braut til framtíðar.

Árangur

sem endist

Mataræði

Venjulegur heimilismatur, engar öfgar

Aðstoð ráðgjafa

Við gerum þetta saman.

Lítil skref

í einu

Æfingar

Þú ræður, í rækt, heima eða úti

Sérhannað kerfi

Auðvelt í notkun, bæði í tölvu og snjallsíma

Sérhannað tölvuforrit

Þú færð þinn eigin aðgang að Hope.is sem er sérhannað lífsstílsbreytingar forrit sem við höfum þróað. Kerfið inniheldur matardagbók, æfingadagbók, mælingakerfi og samskiptakerfi sem við notum til þess að halda utan um þjálfunina.


Hægt er að nota Hope.is bæði í tölvu og á snjallsíma, vefurinn virkar bæði í iPhone og Android símum.

Er Hope fyrir þig?

  • Þarftu að léttast og styrkjast?
  • Vilt þú hjálp við að velja hollari mat, réttar skammtastærðir og hreyfingu?
  • Viltu stuðning og hvatningu í gegnum ferlið?
  • Viltu losna við auka kílóin í eitt skipti fyrir öll?
  • Ertu tilbúin að gefa þér 6 mánuði til þess að gera lífstílsbreytingu sem endist?
  • Ert þú komin á það stig í lífinu að þú ert tilbúin til þess að gera róttækar breytingar í átt að betri líkamlegri og andlegri heilsu?

Ef svarið er já, þá er HOPE fyrir þig!

Skráning er hafin!

Ennþá er opið fyrir skráningar fyrir þá sem vilja byrja í júní. Hope kostar aðeins 19.900 kr. á mánuði með 6 mánaða skuldbindingu. Hægt er að greiða með kreditkorti eða með greiðsluseðli í heimabanka.

Skráðu þig í dag til að hefja þína lífstílsbreytingu. Láttu 2018 vera árið sem þú gerir varanlegar breytingar á lífsstílnum.

Athugið að þetta er 6 mánaða skuldbinding, og umsækjendur þurfa að vera tilbúnir til þess að gefa sér 6 mánuði í lífstílsbreytinguna.

Skrá mig

Verð á mánuði er aðeins
19.900 kr.
  • Aðgangur að Hope kerfinu
  • Andlegur stuðningur og viðtöl við ráðgjafa
  • Leiðbeiningar og kennsla með mataræði
  • Æfingadagbók sem leiðir þig áfram
  • Aðgangur í lokaðan Facebook hóp

Dæmi um fyrstu vikurnar

Vika 1

Vika 1 byrjar á Skype viðtali við heilsuráðgjafa, sem fer með þér yfir allt ferlið, hjálpar þér að setja niður markmið og fer einnig yfir allar þær spurningar og áhyggjur sem þú hefur. Út frá því færð þú sent fræðsluefni sem mun hjálpa þér.
Við byrjum á því að þú heldur matardagbók með því að skrá inn í kerfið það sem þú borðar yfir vikuna og í lok vikunnar fer þjálfari yfir matardagbókina og gefur þér ráðleggingar út frá því. Þar sem við erum bara að taka fyrstu skrefin, þá er engin æfing í þessari viku. Við erum að gera þetta saman, þú ert ekki ein/einn, þú hefur alltaf aðgang að heilsuráðgjafa með menntun í íþróttasálfræði og menntun í hreyfifræði í gegnum tölvupóst ef þér vantar andlegan stuðning eða hefur einhverjar spurningar eða vangaveltur. Við erum hér til að hjálpa þér.

Vika 3

Vika 3 byrjar á Skype viðtali við ráðgjafa, þar er farið yfir stöðuna, hvernig andleg og líkamleg líðan er, farið yfir næstu skref og til að hvetja þig áfram. Hér tökum við næsta skref í mataræðinu með því að þú velur þér morgunmat af lista sem þú færð frá okkur, sem inniheldur úrval af morgunmat sem hentar þér. Síðan heldur þú matardagbók fyrir restina af vikunni. Besta leiðin til að ná fram langvarandi lífstílsbreytingu er að taka lítil skref í einu. Þess vegna byrjum við á að breyta einungis morgunmatnum áður en næsta breyting er gerð. Eftir hverja viku færð þú ráðleggingar frá þjálfara sem eru byggðar á matardagbókinni þinni. Í þessari viku heldur þú áfram með æfingarprógrammið þitt, eins og í síðustu viku, s.s ferð einu sinni á æfingu yfir vikuna. Þú hefur ávallt aðgang að aðstoð ráðgjafa í gegnum tölvupóst.

Vika 2

Vika tvö er mjög svipuð viku eitt, þar sem við erum að koma Hope prógramminu inn í rútínuna þína. Þú nýtir þér fræðsluefnið og ráðleggingarnar frá þjálfaranum til að halda matardagbók í kerfinu. Hér er fyrsta skrefið í hreyfingu tekið, þitt verkefni í þessari viku er að velja hvar og hvernig þú vilt æfa, en þú getur valið að æfa heima, úti (göngutúrar) eða í rækt. Út frá því vali, færð þú æfingarprógramm til að fylgja, en í þessari viku æfir þú aðeins einu sinni, þar sem við erum að venja líkamann við breytingar en síðan eykst fjöldi æfinga hægt og rólega á komandi vikum. Þú verður í samskiptum við ráðgjafa yfir vikuna til að halda hvatningu, en þú hefur ávallt aðgang að aðstoð ráðgjafa í gegnum tölvupóst, við erum að gera þetta saman.

Vika 4

Í fjórðu vikunni heldur þú áfram að velja þér morgunmat af listanum sem er útbúinn fyrir þig, en hann inniheldur margar tegundir af ljúffengum morgunmat. Hér bætum við annarri æfingu við, og æfir þú því tvisvar í þessari viku. Ef þú hefur einhverjar spurningar eða vantar andlegan stuðning, þá hefur þú alltaf aðgang að aðstoð frá heilsuráðgjafa með menntun í íþróttasálfræði og menntun í hreyfifræði í gegnum tölvupóst, Við erum hér til að hjálpa þér. Við erum að gera þetta saman, og erum í góðu sambandi í gegnum allt ferlið.

Ertu með spurningu?

Sendu okkur fyrirspurn með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Senda fyrirspurn

Matardagbók
Á Hope.is hefur þú aðgang að frábærri íslenskri matardagbók sem er auðveld í notkun og inniheldur margar tillögur af hollum máltíðum.


Æfingadagbók
Við sendum þér æfingaplan sem er aðgengilegt í æfingadagbókinni á Hope.is, þar merkir þú við þær æfingar sem þú klárar. Hægt er að sjá myndbönd af öllum æfingum til útskýringar.


Mælingakerfi
Þú heldur utan um mælingarnar þínar í kerfinu okkar og þannig er auðvelt að sjá árangurinn svart á hvítu.


Samskiptakerfi
Það er auðvelt að senda skilaboð á ráðgjafa í gegnum kerfið, við reynum að svara öllum fyrirspurnum innan 24 tíma á virkum dögum.

Edda Dögg Ingibergsdóttir

MSc. Íþróttasálfræði og BSc. Hreyfifræði

Ég stofnaði Hope vegna þess að mér fannst vantar betri lausn til að kenna fólki í yfirþyngd að breyta um lífsstíl til frambúðar. Margir fara í stutt tímabundin átök sem bera lítinn ávöxt til lengri tíma. En undanfarin ár hef ég sérhæft mig í að hjálpa fólki í mikilli yfirþyngd að breyta um lífsstíl.

Ég er með Bachelor of Science gráðu í Hreyfifræði (Kinesiology) með áherslu á þjálfun frá San Franisco State University og Mastersgráðu í Sálfræði með áherslu á íþrótta/heilsu sálfræði frá Capella Unviersity. Ég valdi sálfræði því ég veit af reynslu hvað það er mikilvægt að hafa andlegu hliðina í lagi, og að hún er alveg jafn mikilvæg og líkamleg heilsa þegar það er verið að gera lífstílbreytingu.

Ég hef verið í íþróttum allt mitt líf, en ég byrjaði ung í fimleikum og æfði hjá fimleikafélaginu Björk. Þegar ég lagði fimleikabolinn á hilluna byrjaði ég að þjálfa fimleika og fór svo út í því að vinna á líkamsræktarstöð sem hópaþjálfari og einkaþjálfari. Ég er einnig með einkaþjálfararéttindi frá International Sport Science Association og hef unnið sem einkaþjálfari og fjareinkaþjálfari í mörg ár.

Nám:
Master í Íþróttasálfræði, Capella University
Hreyfifræði frá San Francisco State University
Einkaþjálfaranám frá ISSA

Algengar spurningar

Kosta tími hjá ráðgjafa aukalega?

Nei, tímar hjá ráðgjafa eru innifaldir í verðinu.

Hvernig fara viðtöl við ráðgjafa fram?

Viðtöl við ráðgjafa fara fram í gegnum Skype. En alltaf er hægt að senda skilaboð á ráðgjafa ef þú hefur spurningar eða vantar stuðning.

Ertu með spurningu?

Sendu okkur fyrirspurn með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Er einhver binditími?

Hope er ekki skyndilausn og við vitum að það tekur tíma að ná árangri. Þess vegna er 6 mánaða binditími hjá okkur.

Hvaða greiðslumáta bjóðið þið upp á?

Hægt er að greiða með kreditkorti (Visa og Mastercard), en þeir sem eiga ekki kreditkort geta fengið greiðsluseðil sendan í heimbankann sinn.